Ó, faðir, gjör mig lítið ljós
Við þekkjum öll þessi sálmaorð eftir sr. Matthías Jochumsson úr gömlu skólaljóðunum og hafa fylgt okkur fram á þennan dag: Ó, faðir, gjör mig lítið ljós, um lífs míns stutta skeið, til hjálpar hverjum hal og drós sem hefur villst af leið. Amen
Ég man eftir fermingardegi mínum eins og gerst hefði í gær. Flestir dagar gleymast, þó allir eigi sína sögu og alltaf beri nýtt við á hverjum degi. En svo eru sumir dagar sem geymast og gleymast aldrei. Fermingardagurinn er í lífi margra á meðal þeirra daga.
Við erum hér saman komin aftur í fermingarkirkjunni okkar til að samfagna, halda hátíð, lyfta okkur upp á efri hæðina í andans efnum af því að 50 ár, 60 ár, 70 ár, 75 ár ár eða jafnvel lengur síðan við fermdust. Ég fermdist hér í kirkjunni 3. apríl árið 1966.
Og þetta hús er okkur kært, Þjóðkirkjan eins og hún hét á okkar fermingardegi, þetta kennileyti um fagurt mannlíf í í bæ sem umvafinn er einstakri náttúrufegurð. Þetta hús geymir margar minningar, mikla sögu í blíðu og stríðu. Og hér hafa mörg börnin fermst og ákveðið að hafa Jesú Krist að leiðtoga lífsins.
Mikið var nú gott að alast upp í Hafnarfirði, njóta frelsis bernskuáranna, bærinn var í augum okkar barnanna eins og einn stór leikvöllur og þar gekk á ýmsu og við eigum margar minningar um það.
Og í barnaskólanum ríkti ákveðinn agi og virðing gagnvart kennurum, yfirleitt 30 börn í hverjum bekk með einum kennara og enginn slapp við að læra að lesa, skrifa og reikna og svo allur utanbókalærdómurinn í kristinfræði og sögu. Svo ég gleymi nú ekki ljóðunum.
Ég minnist þess að hver kafli í landafræðibókinni endaði á að upplýsa um einkennisbókstaf í bílnúmerum sérhverjar sýslu. Það festist vel í minni.
Mikið var svo sungið í skólanum þar sem öll börnin voru látin standa í fallegri röð á ganginum utan við skólastofuna og Jón Ásgeirsson spilaði undir á píanóið uppi á sal í gegnum fína hátalarakerfið.
Og fermingin skipti stóru máli fyrir okkur öll, ekki aðeins að vera komin í fullorðinna manna tölu, eins og oft var haft á orði í þá daga, ekki aðeins vegna kærkominna gjafa, heillaóska og fallegrar veislu, heldur vegna þess að við fundum svo innilega að samferðafólki þótti svo vænt um okkur, að við sjálf skiptum máli.
Fermingin okkar er líka samofin minningunni um sr. Garðar Þorsteinsson, sóknarprest og prófast. Með sína djúpu og hljómmiklu rödd stjórnaði hann öllu af hlyju og myndugleik, ekki strangur lærifaðir í fermingarfræðslunni sem spannaði einn og hálfan vetur, vissi mætavel að við vorum sprenglærð í kristinfræði úr barnaskólanum, kunnum heilu sálmaraðirnar og ritningarversin utanbókar og gátum farið með heilræðavísur sr. Hallgríms afturábak og áfram, þó mörg orðin þar væru okkur óskiljanleg og framandi.
Þess vegna gat sr. Garðar farið um víðan völl í fermingarfæðslunni og hafði sérstakt yndi af að segja okkur ferðasögur af sjálfum sér frá Ísrael.
Sr. Garðar var kjölfesta í hafnfirsku samfélagi öll sín prestþjónustuár. Enginn þurfti að spyrja eftir aftansöng hér í Þjóðkirkjunni á aðfangadagskvöldi eins og strákurinn sem hvíslað að mömmu sinni á leiðinni heim eftir jólamessu: “Hvar er svo presturinn geymdur fram á næstu jólum”.
Og enn er fermingin rótgróinn siður í kirkjum landsins, þó flest annað í lífsins ólgusjó fari og komi. Það er svo sérstakt með íslenskar siðvenjur, að þær sem tengjast kristinni trú standast tímans tönn. Hvort sem litið er til hátíða á dagatalinu eða persónulegra tímamóta, t.d. varðandi skírnina og hinstu kveðju. Við heilsum og kveðjum með Guði. Þar er það trúin sem nærir og græðir.
Enda erum við Kristin þjóð. Krosmarkið í þjóðfánanum er til vitnis um það og þjóðsöngurinn Ó, Guðs vors lands, er hreinn bænasálmur. Öll lagasetning, skipulag velferðar og samfélags hvílir á gildum kristinnar trúar, ekki af því að það er mannlífinu eðlislægt, heldur vegna þess að við viljum og veljum að hafa það þannig. En um þetta má bara helst ekki tala. Þetta á bara að vera eins og eitthvert náttúrulögmál.
Í mörgum löndum er þessu algjörlega öðruvísi farið og allt aðrir siðir við líði.
Það er hinn kristni kærleikur sem skilur þar í millum, kærleikur sem hefur fyrrirgefningu að kjölfestu. Það er einmitt fyrirgefningin sem Jesús Kristur boðaði og fól í sér byltinguna sem af henni leiddi. Hin eilífa hefnd var afnumin. Það staðfesti Jesús Kristur með dauða sínum og upprisu. Engin trúarbörgð boða fyrirgefningu eins og Kristin trú gerir, fyrirgefningu sem byggist á iðrun, afturhvarfi og upprisu, afl vonar og nýsköpunar. Þetta er kærleikurinn sem fermingarfræðslan boðar og kennir.
Fermingin á sér langa sögu. Ein stærsta menningarbylting, sem átt hefur sér stað í íslensku þjóðlífi, var þegar tekinn var upp lúterskur siður á 16. öld. Þá var gefin út sérstðk tilskipun um að öll börn á 14. ári skyldu fermast. En skilyrði til þess að fermast var að kunna að lesa og skrifa. Presturinn hafði yfirumsjón með lestrarkennslunni sem aðstandendur barnanna skyldu annast. Oft kom það í hlut afa og ömmu að kenna börnunum.
Ástæðan var sú, að allir óháð kyni eða stöðu urðu að geta ræktað beint samband við Guð án forræðis kirkjunnar og þá þurfti fólkið að geta lesið til að fræðast um Guð. Hér var líka boðaður nýr mannskilningur þar sem höfðað var til sjálfstæðis og ábyrgðar sérhvers manns.
Þannig varð fermingarfæðslan fyrsti barnaskóli í landinu. Og þetta réði úrslitum um, að fátæk þjóð um aldir var eigi að síður menntuð.
Ekki fyrir löngu síðan hlustaði ég á viðtal við mannfræðing í útvarpinu sem sagði frá rannsóknum sínum á farnaði íslenskra flóttamanna sem settust að í Kanada og Bandaríkjunum á 19. öld. Það vakti athygli hennar hve margir Íslendingar völdust fljótlega til forystu- og ábyrgðarstarfa á opinberum vettvangi í nýjum heimkynnum sínum. Ástæðan var einföld. Allir Íslendingarnir kunnu að lesa og skrifa og höfðu það umfram marga aðra bæði heimafólk og flóttafólk. Hverju má þakka það, var þá mannfræðingurinn spurður sem svaraði að bragði: Það er fermingunni að þakka á Íslandi.
En svo gat það gerst í fermingarfræðslunni að börnunum gekk misjafnlega vel með að höndla fræðin. Það var til siðs á öldum fyrr, að þegar biskupinn vísiteraði söfnuðinn, þá var fermingarbörnunum raðað upp fyrir framan hann og hann spurði þau út úr fræðunum.
Einu sinni kom siðvandur og strangur biskup að fermingardreng, sem átt hafði í basli með bæði lestur og fræði, og bað hann að fara með trúarjátninguna. Drengur stamaði lágum rómi: Ég trúi á Guð, svo kom löng þögn, en sagði svo: Ég er ekki kominn lengra.
Þá svarið biskupinn: Ekki ég heldur.
Það er kjarni málsins og kjölfestan í fermingunni, að treysta Guði.
Og það er ekki lítið að treysta Guði í för á lífsins leið. Og þá skiptir máli veganestið úr fermingarfræðslunni eða kristindómsuppfræðslan úr barnaskólanum. Þó manni finnist það í dagsins iðu og götunnar glaumi allt vera gleymt og grafið, þá er þar samt minning sem tendrar fallegt ljós, elur von og ræktar ást sem elskar lífið. Einmitt þetta sem guðspjallið, sem lesið var frá altarinu boðar, að gjöra allt heilt og fagurt.
Það gerum við hér innilega og njótum samfélags og vináttu og samfögnum og getum sagt heilshugar í ljósi reynslunnar með sr. Hallgrími Péturssyni: Ungum er það allra best, að óttast Guð, sinn herra, þeim mun viskan veitast mest og virðing aldrei þverra. Amen.