Verum Guði falin
Þann 31. október árið 1517, kvöldið fyrir allraheilagra messu, mátti sjá dökkklæddann háskólaprófessor á fertugsaldri bisa við að negla þéttskrifaðar pappírsarkir á tréhurð Hallarkirkjunnar í Wittenberg í Þýskalandi. Hurðin var gjarna notuð sem upplýsingatafla fyrir háskólann í bænum og það var algengt að stúdentar og prófsessorar negldu eða límdu þar upp tilkynningar, auglýsingar og fundarboð. Þessi aðferð er notuð enn þann dag í dag, að hengja upp auglýsingar á opinberum stöðum, eins og sjá má í búðinni okkar Skjálfta, þó nú sé viðburði oftast að finna á netinu.
Prófessorinn var Marteinn Lúther (1483-1542) og með þessum gjörningi hratt hann af stað miklum samfélagsbreytingum, þó hann hafi aðeins ætlað sér að endurnýja sína rómversk-kaþólsku kirkju sem hann áleit vera á villigötum. Með því að birta greinarnar 95, sem hann skrifaði á latínu, kirkju- og háskólamáli þess tíma, vildi hann kalla fólk til samtals og rökræðna, sérstaklega um þann ósið að telja fólki trú um að hægt væri að kaupa sér og sínum sálarfrið með svokölluðum aflátsbréfum.
Guð elskar okkur eins og við erum
Þetta kvöld köllum við í dag hrekkjavöku og höldum upp á í auknum mæli skoska og írska útgáfu þess sem barst til okkar frá henni Ameríku; Halloween, sem er stytting á nafninu All Hallows´Evening eða All Hallows´Eve, aðfangakvöld allra heilagra messu sem sagt. Ekki var búið að finna upp hrekkjavökuna þá, en fólk streymdi til Hallarkirkjunnar í Wittemberg til messu og til að gera bæn sína frammi fyrir helgum dómum kirkjunnar. Þó aðeins lítill hluti fólksins hafi verið læst á latínu – eða yfirhöfuð kunnað að lesa – vöktu greinarnar 95 mikla athygli og voru undireins þýddar á þýsku og prentaðar sem dreifirit.
En hvað var svona merkilegt við þetta? Jú, Lúther lá mjög á hjarta að fagnaðarerindið um ást Guðs fengi að hljóma hreint og ómengað af allri sölumennsku. Á komandi árum þýddi hann Biblíuna á þýsku og með siðbótinni fylgdi áherslan á að allir fengju að læra að lesa og geta þannig fengið beinan aðgang að orði Guðs.
Meginkenning Lúthers var að Guð elski okkur eins og við erum. Við þurfum ekki að sanna okkur sjálf eða vinna okkur inn ást Guðs. Það er óvinnandi verk því við erum breyskar verur og getum aldrei gert okkur sjálf fullkomlega verðug þess að vera elskuð. Fagnaðarerindið er að Guð sér okkur eins og við erum og elskar okkur eins og við erum, líka dökku hliðarnar okkar sem litast af syndinni, sem merkir einfaldlega sundrung frá hreinum kærleika Guðs.
,,Réttlæting af trú“ er hugtakið sem Lúther átti eftir að nota; aðeins með því að treysta ást Guðs í Jesú Kristi, að Jesús lifði, dó og reis upp frá dauðum fyrir þig og fyrir mig, getum við fundið sátt og frið við Guð og menn. Hvernig gerist það? Lúther lagði mikla áherslu á lestur Biblíunnar og prédikunina ásamt bæninni. Þar, og í altarissakramentinu sem felur í sér raunverulega nálægð Jesú Krists, mætum við Heilögum anda Guðs, sem gefur trúna.
Trúin kemur af því að heyra
Í Rómverjabréfinu segir (Róm 10.14-17):
En hvernig eiga menn að geta ákallað þann sem þeir trúa ekki á? Og hvernig eiga þeir að trúa á þann sem þeir hafa ekki heyrt um? Og hvernig eiga þeir að heyra án þess að einhver prédiki? Og hver getur prédikað nema hann sé sendur? Svo er og ritað: „Hversu fagurt er fótatak þeirra sem boða fagnaðarerindið um hið góða.“
En ekki tóku allir við fagnaðarerindinu. Jesaja segir: „Drottinn, hver trúði því sem við boðuðum?“ Trúin kemur þannig af því að heyra. Og það sem heyrt er byggist á orðum Krists.
Þessi orð eru oft lesin á kristniboðsdaginn sem er haldinn hátíðlegur í þjóðkirkjunni annan sunnudag í nóvember. Þá erum við minnt á mikilvægi þess að fagnaðarboðskapurinn um ást Guðs berist sem víðast og markmiðið er að allar þjóðir og þjóðarbrot fái Biblíuna á sínu tungumáli og eigi þess kost að heyra orð Krists útlagt í prédikun. Íslenska kristniboðið hefur lagt sitt af mörkum til útbreiðslu kristinnar trúar hér heima og víðar í rúm eitthundrað ár en Kristniboðsfélag kvenna í Reykjavík var stofnað 9. nóvember 1904 á heimili langömmu minnar og -afa.
Í dag sameinum við mörg tilefni, kristniboðsdaginn sem framundan er, siðbótardaginn, sem var í gær og svo er í dag allra heilagra messa. Á morgun, 2. nóvember, heldur rómversk-kaþólska kirkjan allra sálna messu. Í okkar kirkju höldum við þessa tvo daga, 1. og 2. nóvember, eða fyrsta sunnudaginn í nóvember, sem minningardag látinna.
Þau eru Guði falin
Í lútherskri kirkju biðjum við ekki fyrir framliðnum heldur þökkum lífið þeirra og minnumst þeirra með virðingu. Við lítum svo á að þau sem eru farin á undan okkur séu nú þegar Guði falin. Kertaljósið sem við kveikjum hér í kirkjunni eða á gröf látinna ástvina táknar að ljós þeirra lifir í hjarta okkar og í faðmi Guðs.
Þetta er fallegur siður sem kom til okkar frá Svíþjóð fyrir nokkrum áratugum. Það er okkur hollt að staldra við, leyfa okkur að finna tilfinningar sorgarinnar, söknuð og eftirsjá. Með því gefum við okkur sjálfum rými til að minnast og gefa Guði allt, líka það sem hefur verið og er okkur erfitt og stundum nánast óbærilegt. Í dag vitum við að það hjálpar að halda minningu látinna ástvina á lofti, rifja upp liðna tíð og leyfa nýjum kynslóðum að kynnast hinum fyrri með því að segja þeim sögur af þeim.
Við eigum oft erfitt með að tala um tilfinningar okkar og stundum er sársaukinn of mikill til að hægt sé að orða hlutina. En þá er hægt að leggja daprar hugsanir sínar og hjartasár í faðm Guðs í bæninni. Guð þekkir okkur út og inn, já miklu betur en við sjálf, og þegar við leyfum nærveru Guðs að dvelja með okkur á dimmu dögunum, jafnt sem þeim björtu, mýkist hjarta okkar og við nálgumst okkur sjálf á nýjan hátt.
Treystum Guði
Að vera réttlætt af trú, eins og Marteinn Lúther lagði svo mikla áherslu á, hljómar kannski eins og eitthvað óskiljanlegt. En kjarninn er þessi: Við megum finna til, við þurfum ekki að þykjast, við þurfum ekki að sanna okkur, bara koma til Guðs með okkar brotna líf, eins og stundum er sagt. Og Guð gerir alla hluti nýja, Guð gerir hjarta okkar heilt og Guð kallar fram í okkur löngun til að láta gott af okkur leiða, til dæmis með því að leyfa fleirum að heyra gleðifréttirnar um kærleika Guðs, eins og segir í Litlu Biblíunni sem Lúther kallaði svo (Jóh 3.16-17).
Því svo elskaði Guð heiminn að hann gaf einkason sinn til þess að hver sem á hann trúir glatist ekki heldur hafi eilíft líf. Guð sendi ekki soninn í heiminn til að dæma heiminn heldur til þess að frelsa hann.
Við getum treyst Guði fyrir lífi okkar. Eins treystum við Guði fyrir lífi okkar látnu ástvina. Þau eru í faðmi Guðs, umvafin kærleika Guðs og friði sem er langt umfram það sem við fáum skilið eða skynjað. Því segjum við með postulanum (Fil 4.4-7):
Verið ávallt glöð í Drottni. Ég segi aftur: Verið glöð. Ljúflyndi ykkar verði kunnugt öllum mönnum. Drottinn er í nánd. Verið ekki hugsjúk um neitt heldur gerið í öllum hlutum óskir ykkar kunnar Guði með bæn og beiðni og þakkargjörð. Og friður Guðs, sem er æðri öllum skilningi, mun varðveita hjörtu ykkar og hugsanir ykkar í Kristi Jesú.