Þegar hlutirnir ganga ekki upp
Náð og friður sé með ykkur öllum frá Drottni Jesú Kristi. Amen.
Þegar biblíutextar eru ritskýrðir er vert að skoða innra samhengi þeirra. Það þýðir að skoða textana sem liggja í kringum umræddan kafla. Hér sjáum við frelsarann okkar pirraðan og þreyttan á þessari vantrúuðu kynslóð. Hve oft þarf Jesús að bjarga málunum svo að fólkið taki trú? Pirringur hans beinist ekki aðeins að fólkinu sem þarfnast merkis og kraftaverka heldur einnig að lærisveinunum, hans nánustu vinum. Þeir fylgja honum nánast hvert skref og fá leyndardóm Guðs beint í æð. Lærisveinarnir eru þeir einu sem fá nákvæmar útskýringar á dæmisögum Jesú.
Ef við skoðum kaflann á undan lesum við um játningu Péturs. Orðrómar fóru af stað um Galíleu um hver Jesús væri. Sumir töldu hann vera Jóhannes Skírara, aðrir Elía og enn aðrir einn af spámönnum Gamla Testamentisins. Svo kemur hápunkturinn þegar Jesús spyr: „En hvern segið þið mig vera?“ Pétur svarar: „Þú ert Kristur.“ Stuttu seinna tók Jesús þá Pétur, Jakob og Jóhannes með sér á hátt fjall. Þar ummyndaðist Jesús fyrir augum þeirra og klæði hans urðu fannhvít. Rödd kom af himnum sem sagði: „Þetta er minn elskaði sonur, hlýðið á hann.“
Eftir allar samverustundir, öll kraftaverk, játningu Péturs og ummyndun Jesú, getum við ímyndað okkur að frelsarinn hafi verið pirraður á lærisveinum sínum. Þrátt fyrir allt sem þeir heyrðu og sáu var trú þeirra ekki nógu mikil. Þeir gátu ekki læknað son mannsins og rekið út illa andann. Sem fyrr er Jesús til staðar þegar hlutirnir ganga ekki upp. Vonsviknir lærisveinarnir spyrja frelsarann: „Hvers vegna gátum við ekki rekið hann út?“ Jesús sýnir þeim mildi og býður þeim þessi huggandi orð: „Þetta kyn verður eigi rekið út nema með bæn.“ Með öðrum orðum eru sumar aðstæður svo ómögulegar að við getum ekkert gert nema að treysta á frelsarann.
Þegar ég vígðist sem prestur til Víkur í Mýrdal fyrir rúmum fjórum árum eignaðist ég góða vini í gegnum matarklúbb. Við vorum sjö talsins og skiptumst á að bjóða hvert öðru í mat og um leið eiga gott samfélag. Þetta gerðum við einu sinni í mánuði og í hvert skipti urðu tengslin á milli okkar vina sterkari. Í hópnum var eitt par sem voru bæði jafngömul mér og áttu son jafngamlan dóttur minni. Því var það mikið áfall fyrir mig að heyra að móðirin hafði greinst með ólæknandi krabbamein. Ekki liðu margir mánuðir þangað til að ég þyrfti að jarðsyngja hana, 28 ára gamla. Sorgin var gríðarleg í samfélaginu og í fjölskyldu hennar voru engin orð til sem lýstu tilfinningalegu ástandi þeirra. Að ósk hinnar látnu var athöfnin ekki kristin heldur veraldleg. Þau voru ekki trúuð en vildu samt sem áður fá mig, vin þeirra, til að halda utan um minningarstundina. Ég heimsótti ekkilinn í nokkra mánuði eftir athöfn með reglulegu millibili. Sem presturinn hans veitti ég honum sálgæslu en sem vinur stuðning minn og ást.
Stundum ganga hlutirnir ekki upp. Stundum í lífi okkar er ekki hægt að laga neitt. Við myndum öll vilja hafa hæfileikann til að lækna sjúkdóma og veikindi en sumt verður ekki læknað. Það er mikilvægt að minna sig á að við getum ekki bjargað öllu og þá sérstaklega þegar við stígum inn í ómögulegar aðstæður, hvort við séum fagfólk eða vinir og fjölskylda. Þegar svona áföll eiga sér stað í litlu bæjarfélagi er bæjarbúum boðin minningarstund. Þar koma allir íbúar saman til að minnast hins látna og leggja orð sín í bæn.
Stundum er kraftaverkið ekki sjáanlegt eða augljóst en að mínu mati er það kraftaverk þegar nánast allir koma saman til að syrgja, biðja og styðja við aðstandendur hins látna. Þannig var það í Vík og þó svo að það lagaði ekki neitt, læknaði engan og lífgaði engan við, að þá hjálpaði það heilmikið. Ekkillinn fann enga huggun í trúnni eða í Drottni en hann fann stuðning í mér sem fékk leyfi til að biðja fyrir honum og syni hans á hverjum degi. Þeir feðgar fundu stuðning í allri þeirri umhyggju og kærleika sem fjölskyldan þeirra gat gefið þeim.
Í ómögulegum aðstæðum má ekki vanmeta bænina því að á stundum er hún það eina sem við höfum og getum notað. Það er svo sannarlega vilji Drottins að við höfum trú en jafnvel hún er ekki nóg til að bjarga öllu. Þetta sjáum við hjá lærisveinum sem gátu ekki læknað drenginn, þetta sjáum í sögunni sem ég deildi og þetta vitum við flest af lífsreynslu okkar. Við höfum langflest upplifað áföll eða þurft að stíga inn í erfiðar aðstæður. Þá er gott að eiga bænina og leggja byrgðir okkar í Guðs hendur þegar allt annað virðist ekki ganga upp. Dýrð sé Guði, föður og syni, og heilögum anda, svo sem var í upphafi, er og verður um aldir alda. Amen.