Sálmabók

217. Þá þú gengur í Guðs hús inn

Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
hymn notes

1 Þá þú gengur í Guðs hús inn,
gæt þess vel, sál mín fróma,
hæð þú þar ekki Herrann þinn
með hegðun líkamans tóma.
Beygðu holdsins og hjartans kné,
heit bæn þín ástarkveðja sé,
hræsnin mun síst þér sóma.

2 Meðan lífs æð er í mér heit
eg skal þig, Drottinn, prísa,
af hjartans grunni' í hverjum reit
heiður þíns nafns auglýsa.
Feginn vil ég í heimi hér
hlýða og fylgja' í öllu þér.
Lát mér þína liðsemd vísa.

  • THallgrímur Pétursson Ps. 24
  • LHymnodia Sacra 1742 – Weyse 1840 – PG 1861
    Hver sem að reisir hæga byggð
  • Sálmar með sama lagi
  • Eldra númer 209
  • Eldra númer útskýring T+L