Sálmabók
85. Þótt æði stormar heims um haf
Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
1 Þótt æði stormar heims um haf
ei háski granda má oss,
þeir bát vorn fært ei fá í kaf
því frelsarinn er hjá oss.
Ei öldur skaða' oss hót því hann
er haf og vinda stöðva kann
þeim bægir burtu frá oss.
2 Þótt vantrú sjái' af hættum her
og hugsi: „Drottinn sefur“
og hræðslan kveini: „Hjálpin þver,
oss Herrann yfirgefur,“ –
ég þreyja vil í traustri trú
og treysta, Jesú minn, að þú
mig örmum verndar vefur.
3 Mitt hjarta, Jesú, vantrú ver
þótt volki heims ei linni
en þá mig hels að boða ber,
þú bjarga sálu minni,
þá virstu hasta' á vind og sjó
og veittu mér í sælli ró
að lenda’ í lífshöfn þinni.
- TBernhard S. Ingemann 1825 – Helgi Hálfdánarson – Sb. 1886Lad bruse storm paa verdens hav
- LHymnodia Sacra 1742 – Weyse 1840 – PG 1861Hver sem að reisir hæga byggð
- Sálmar með sama lagi
- Eldra númer 571
- Eldra númer útskýring T+L
- Biblíutilvísun Mark. 4.35–40