Sálmabók
231. Lofa, sál mín, lofa Drottin
Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
1 Lofa, sál mín, lofa Drottin,
lífsins föður himnum á
sem þín mein og lýti læknar,
leysir synd og dauða frá.
Allt sem í mér er og lifir
eilíft lof skal honum tjá.
2 Mannlegt eðli þitt hann þekkir,
þú ert moldarstrá og blóm,
fætt í gær og fölt á morgun,
fokið, gleymt sem dust og hjóm.
Drottinn man þig, Drottinn opnar
dýrðar sinnar helgidóm.
3 Vakna, lifna, lífið kallar,
ljóssins ríki frelsarans,
bróðurfórnin brúað hefur
bilið milli Guðs og manns.
Opna hjartað, elska, þjóna
anda, vilja, kærleik hans.
4 Heyr þú, sál mín, himnar syngja,
heilög ómar þakkargjörð,
sjá, Guðs ríki opnast yfir
upprisunnar nýju jörð.
Hallelúja, lofi Drottin,
lífsins konung, öll hans hjörð.
- TSigurbjörn Einarsson 1997 – Sb. 1997
- LJohn Goss 1869 – Sb. 1997LAUDA ANIMA / Praise, My Soul
- Sálmar með sama lagi
- Eldra númer 734
- Eldra númer útskýring T+L