Sálmabók
240. Veit mér náð að vaka og stríða
Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
Veit mér náð að vaka' og stríða,
vinna trúar sigurinn,
þínum vilja helgum hlýða,
hreinan geyma lærdóm þinn
uns ég lít þitt auglit blíða
í Guðs ríki, Jesú minn.
- TGuðmundur Gísli Sigurðsson – Sb. 1871
- LJohn Goss 1869 – Sb. 1997LAUDA ANIMA / Praise, My Soul
- Sálmar með sama lagi
- Eldra númer 368
- Eldra númer útskýring T+L