Sálmabók

285. Guð faðir, dýrð og þökk sé þér

Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
hymn notes

1 Guð faðir, dýrð og þökk sé þér,
á þína gæsku trúum vér.
Þitt heilagt orð skóp himna, geim og storð.
Dýrð þér, dýrð þér, dýrð sé þér, heilagi Guð.

2 Vor Drottinn Kristur, lífsins lind,
þú læknar heimsins böl og synd,
Guðs einkason, vor endurlausn og von.
Dýrð þér, dýrð þér, dýrð sé þér, heilagi Guð.

3 Guð, helgur andi, ást og trú
og eina kirkju skapar þú
á himni' og jörð og leiðir ljóssins hjörð.
Dýrð þér, dýrð þér, dýrð sé þér, heilagi Guð.

  • TBengt Jonzon 1919 – Sigurbjörn Einarsson 1966 – Sb. 1972
    Vi tror på Gud, som himmel, jord
  • L15. öld – Mortensen 1529 – Gr. 1594 / R Róbert A. Ottósson, 1967
    Tibi laus salus sit Christe
  • Sálmar með sama lagi
  • Eldra númer 227
  • Eldra númer útskýring T+L