Sálmabók
Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
Ó, lífsins faðir, láni krýn
í lífi' og dauða börnin þín
sem bundust trú og tryggðum.
Lát geisla þinnar gæsku sjást
í gegnum þeirra hjónaást
með gulli dýrri dyggðum.
:,: Þitt ráð, þín náð
saman tengi, gefi gengi,
gleðji, blessi
hér og síðar hjónin þessi. :,: