Sálmabók

383. Hér þegar verður hold

Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
hymn notes

1 Hér þegar verður hold
hulið í jarðarmold
sálin hryggðarlaust hvílir,
henni Guðs miskunn skýlir.

2 Ókvíðinn er ég nú,
af því ég hef þá trú,
miskunn Guðs sálu mína
mun taka' í vöktun sína.

3 Hvernig sem holdið fer
hér þegar lífið þver,
Jesú, í umsjón þinni
óhætt er sálu minni.

4 Ég lofa, lausnarinn, þig
sem leystir úr útlegð mig,
hvíld næ ég náðarspakri
nú í miskunnar akri.

5 Þú gafst mér akurinn þinn,
þér gef ég aftur minn.
Ást þína á ég ríka,
eigðu mitt hjartað líka.

6 Hveitikorn þekktu þitt
þá upp rís holdið mitt.
Í bindini barna þinna
blessun láttu mig finna.

  • THallgrímur Pétursson Ps. 17
  • LWeisse 1531 – Sb. 1589
    Vater im höchsten Thron
  • Sálmar með sama lagi
  • Eldra númer 279
  • Eldra númer útskýring T+L