Sálmabók
392. Oss minni sérhver morgunn á
Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
1 Oss minni sérhver morgunn á
Guðs mildu föðurnáð
er sveipar myrkrum sólu frá
:,: og sendir geisla' um láð. :,:
2 Oss minni fögur morgunsól
á morgunsól þá fyrst
er skín hjá Drottins dýrðarstól:
:,: vorn Drottin, Jesúm Krist. :,:
3 Oss minni ljúfur morgunblær
á mætan sannleik þann
að andi Guðs er æ oss nær
:,: þótt ei vér finnum hann. :,:
4 Oss minni sérhver morgunn nýr
á mildi' er aldrei dvín
og sorgarmyrkrið svart að flýr
:,: er sól Guðs líknar skín. :,:
5 Oss minni sérhver morgunstund
á miskunn Drottins þá
er lætur eftir banablund
:,: oss betri morgun sjá. :,:
- TValdimar Briem – Sb. 1886
- LNikolaus Herman 1554 – PG 1878Lobt Gott, ihr Christen alle gleich
- Sálmar með sama lagi
- Eldra númer 450
- Eldra númer útskýring T+L