Sálmabók

482. Upp, skepna hver, og göfga glöð

Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
hymn notes

1 Upp, skepna hver, og göfga glöð
vorn Guð með þakkarfórn,
af ástarverkum eilíf röð
:,: er öll hans voldug stjórn. :,:

2 Ó, lofið mesta meistarann,
þér menn, á hverri tíð,
því mikla gjörir hluti hann
:,: um heiminn ár og síð. :,:

3 Oss öllum líf og afl og brauð
hann óverðskuldað gaf,
í líkn á vora leit hann nauð
:,: og létti byrðum af. :,:

4 Vor sól og skjöldur æ hann er,
vort athvarf, traust og hlíf,
vort ljós í dalnum dimma hér,
:,: í dauðanum vort líf. :,:

5 Hann opnar helgan himin sinn
er heims er lokið vist
og sínum þangað safnar inn
:,: í samfélag við Krist. :,:

6 Ó, lofum allir, lofum hann,
hann lofi rödd og mál,
hann lofi allt er lofa kann,
:,: hann lofi hjarta' og sál. :,:

  • TPaul Gerhardt 1647 – Helgi Hálfdánarson – Sb. 1886
    Nun danket all und bringet Ehr / Op, alle, som på jorden bor
  • LNikolaus Herman 1554 – PG 1878
    Lobt Gott, ihr Christen alle gleich
  • Sálmar með sama lagi
  • Eldra númer 12
  • Eldra númer útskýring T+L