Sálmabók

393. Í Jesú nafni ég upp rís

Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
hymn notes

1 Í Jesú nafni ég upp rís,
ó, Jesú, þér sé lof og prís,
þú verndaðir mig nú í nótt
frá neyð og angist, kvöl og sótt.

2 Blessað dagsljósið lést mig sjá,
leystir svo myrkurs ógnum frá
heill og ósjúkur að ég er,
ó, góði Jesú, lof sé þér.

3 Verkin mín, Drottinn, þóknist þér,
þau láttu öll vel takast mér,
ávaxtarsöm sé iðjan mín,
yfir mér hvíli blessun þín.

4 Lof sé föðurnum lesið og tjáð,
lof sé vors Herra Jesú náð,
lof helgum anda' á alla grein.
Amen, lof sé þér þrenning hrein.

  • THallgrímur Pétursson, 1763 – Sb. 1972
  • LMartin Luther 1539 – Sb. 1589
    Vom himmel hoch, da komm ich her
  • Sálmar með sama lagi
  • Eldra númer 451a
  • Eldra númer útskýring T+L