Sálmabók

489. Í Jesú nafni njótum vér

Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
hymn notes

1 Í Jesú nafni njótum vér
af nægtum þinna gæða hér
og biðjum þig að blessir þú
það brauð sem, Drottinn, fáum nú.

2 Ó, Drottinn Guð, vér þökkum þér
að þinna gæða nutum vér.
Mig endurnærði náðin þín
sem nú og æ er gleði mín.

  • TBjarni Eyjólfsson 1941 – Vb. 1991
  • LMartin Luther 1539 – Sb. 1589
    Vom Himmel hoch, da komm ich her
  • Sálmar með sama lagi
  • Eldra númer 598
  • Eldra númer útskýring T