Sálmabók

400. Ó, Drottinn, ljós og lífið mitt

Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
hymn notes

1 Ó, Drottinn, ljós og lífið mitt,
ég lofa' og mikla nafnið þitt,
þig lofi allt sem anda hrærir
og allt sem blessar þú og nærir.
Nú ljómar dýrðardagur nýr
en dimman nætur burtu flýr.

2 Það allt sem lifir lífgar þú
með ljósi þínu, faðir, nú,
og endurnærður elsku þinni
ég enn þá rís úr hvílu minni
og minnist þess að miskunn þín
í morgunsólar geislum skín.

3 Þitt blessað ljós nú minnir mig
á mína skyldu' að elska þig
sem það af náð mér lýsa lætur
svo leggi' á flótta dimman nætur.
Þín dýrðleg sól því segir mér:
Æ, sjá, hve góður Drottinn er.

4 Þitt blessað ljós sem lýsir mér
til ljóssins iðju kallar hér.
Æ, lát mig allt í ljósi vinna
í ljósi sannleiks orða þinna,
í ljósi þínu ljósið sjá
og ljóssins barna hnossi ná.

  • TPáll Jónsson – Vb. 1861
  • LSænskt handrit frá 1694/95
    Han lever! O min ande, känn
  • Sálmar með sama lagi
  • Tilvísun í annað lag
  • Eldra númer 455
  • Eldra númer útskýring T