Sálmabók

412. Vor Drottinn Jesú, dýrð sé þér

Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
hymn notes

1 Vor Drottinn Jesú, dýrð sé þér,
þig, Drottinn Jesú, lofum vér.
Til hjálpar oss í heim komst þú,
til hjálpar oss þú ríkir nú,
þú styrkir oss í stríði' og neyð,
þú styður oss á sorgarleið,
þú leiðir oss til lífs í deyð.

2 Með lotning sérhvað lýtur þér
sem lífs á himni' og jörðu er.
Þótt veröld kalli vald sitt hátt
það veikt er æ og þrýtur brátt
en ríkið þitt ei raskast má,
það rétti' og sannleik byggt er á
og aðeins þar er frelsi' að fá.

3 Vorn óstyrk, Drottinn, þekkir þú
og það hve oft vor dofnar trú.
Æ, veit oss styrk svo veröld flá
ei villt oss geti sannleik frá,
lát hjörtu vor svo helgast þér
að heilags friðar njótum vér
og hreppum arf sem aldrei þver.

  • THenrik Kampmann um 1800 – Kristján Jóhannsson – Sb. 1801 – Helgi Hálfdánarson – Sb. 1886
    Jesu Christ! Vi offre dig
  • LHohenfurth um 1450 – Horn 1544 – Sb. 1589
    In natali Domini / Da Christus geboren var / Singen wir aus Herzensgrund
  • Sálmar með sama lagi
  • Eldra númer 46
  • Eldra númer útskýring T+L