Sálmabók
432b. Verður það oft þá varir minnst
Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
Verður það oft þá varir minnst,
voveifleg hætta búin finnst.
Ein nótt er ei til enda trygg,
að því á kvöldin, sál mín, hygg.
Hvað helst sem kann að koma' upp á
kjós Jesúm þér að vera hjá.
Skelfing engin þig skaðar þá.
- THallgrímur Pétursson Ps. 5Verður það oft, þá varir minnst
- LHohenfurth um 1450 – Horn 1544 – Sb. 1589In natali Domini / Da Christus geboren war / Singen wir aus Herzensgrund
- Sálmar með sama lagi
- Eldra númer 474
- Eldra númer útskýring T+L