Sálmabók

513. Þú, Guðs son, eilíf gæskulind

Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
hymn notes

1 Þú, Guðs son, eilíf gæskulind,
að guðdómsvaldi ríkur,
þig klæddir vorri moldarmynd
og mönnum gjörðist líkur,
þú hefur lítillækkað þig
til líknar kyni manna
svo leiddir það á lífsins stig
til ljóss og dýrðar ranna
úr hlekkjum hörmunganna.

2 Því valdið aftur hlaustu hátt
sem hverri tign er stærra
og guðdómsnafnið eilíft átt
nú öllum nöfnum hærra.
Hvert hné á jörð og himni sig
til heiðurs þér æ beygi,
hver tunga sífellt tigni þig,
í trú hver rómur segi
þér lof sem linnir eigi.

  • THelgi Hálfdánarson – Sb. 1886
  • LSigurður Sævarsson 2017
  • Tilvísun í annað lag
  • Eldra númer 200
  • Eldra númer útskýring T
  • Biblíutilvísun Fil. 2.6–11