Sálmabók
526. Orð þitt, Drottinn, veg oss vísi
Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
Orð þitt, Drottinn, veg oss vísi
villustigum heimsins á,
oss þitt blessað ljósið lýsi
ljóss til byggða jörðu frá.
Á þig einan vonum vér,
veit oss náð að treysta þér,
þig að elska' og þér að hlýða,
þínum undir merkjum stríða.
- TPáll Jónsson – Sb. 1871
- LBourgeois 1551 – Melodia, handrit frá 17. öld – Sb. 1801Freu dich sehr, o meine Seele
- Sálmar með sama lagi
- Eldra númer 299
- Eldra númer útskýring T+L