Sálmabók

531. Bæn þína aldrei byggðu fast

Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
hymn notes

1 Bæn þína aldrei byggðu fast
á brjóstvit náttúru þinnar,
í Guðs orði skal hún grundvallast,
það gefur styrk trúarinnar.

2 Vér vitum ei hvers biðja ber,
blindleikinn holds því veldur,
orð Guðs sýnir þann sannleik þér,
sæll er sá þar við heldur.

  • THallgrímur Pétursson Ps. 44
  • LWormodsen 1539 – Thomissøn 1569 – Gr. 1594 – SÓ 2015
    Gud Fader udi Himmerig (íslensk breyting)
  • Tilvísun í annað lag
  • Eldra númer 339
  • Eldra númer útskýring T