Sálmabók
59. Hve fagurt ljómar ljósaher
Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
1 Hve fagurt ljómar ljósaher
á loftsins bláa geim.
Hve milt og blítt þau benda mér
í bústað Drottins heim.
2 Hve björt og fögur sú var sól
er sást um austurgeim
og fegurst skein hin fyrstu jól
við fæðing Guðs í heim.
3 Ó, lát þá stjörnu lýsa mér
um lífsins eyðisand
og sýna mér nær fjörið fer
hið fyrirheitna land.
4 Ó, lát þá stjörnu lýsa mér
um lífsins myrka dal
og leiða mig, nær lífið þver,
í ljóssins bjarta sal.
- TValdimar Briem – Sb. 1886
- LPeder Knudsen 1859 – Sb. 1997Jeg er så glad hver julekveld
- Tilvísun í annað lag
- Eldra númer 110
- Eldra númer útskýring T+L
- Biblíutilvísun Matt. 2.1–2