Sálmabók

75. Í Jesú nafni áfram enn

Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
hymn notes

1 Í Jesú nafni áfram enn
með ári nýju, kristnir menn,
það nafn um árs- og ævispor
sé æðsta gleði' og blessun vor.

2 Í nafni hans æ nýtt er ár,
því nafni' er græðir öll vor sár,
í nafni hans fá börnin blíð
Guðs blessun fyrst á ævitíð.

3 Í nafni hans sé niður sáð
með nýju vori' í þiðnað láð,
í nafni hans Guðs orði á
á æskuvori snemma' að sá.

4 Í nafni hans sé starf og stríð
er stendur hæst um sumartíð,
í nafni hans sé lögð vor leið
um lífsins starfs- og þroskaskeið.

5 Í nafni hans þótt haust sé kalt
vér horfum glaðir fram á allt,
í nafni hans er þróttur þver
vér þráum líf sem betra er.

6 Í nafni hans vér hljótum ró
er hulin jörð er vetrarsnjó,
í nafni hans fær sofnað sætt
með silfurhárum ellin grætt.

7 Í Jesú nafni endar ár
er oss er fæddur Drottinn hár,
í Jesú nafni lykti líf,
hans lausnarnafn þá sé vor hlíf.

8 Á hverri árs- og ævitíð
er allt að breytast fyrr og síð.
Þótt breytist allt þó einn er jafn,
um eilífð ber hann Jesú nafn.

  • TValdimar Briem – Sb. 1886
  • LOlle Widestrand 1981
    Ett litet barn av Davids hus
  • Sálmar með sama lagi
  • Tilvísun í annað lag
  • Eldra númer 105
  • Eldra númer útskýring T
  • Biblíutilvísun Lúk. 2.21