Sálmabók

79a. Andi Guðs sveif áður fyr

Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
hymn notes

1 Andi Guðs sveif áður fyr
yfir vatna djúpi.
Upp þá lukust ljóssins dyr,
létti' af myrkra hjúpi.
Upp reis jörðin ung og ný
árdags geislum böðuð í
þá úr dimmu djúpi.

2 Andi Guðs sveif annað sinn
yfir vatni köldu
þegar lét sig lausnarinn
lauga' í Jórdans öldu.
Opnast himinn, eins og nýtt
upp rann náðarljósið blítt
dauða' úr djúpi köldu.

3 Andinn svífur enn sem fyr
yfir vatni tæru,
opnast himins dýrðardyr
Drottins börnum kæru.
Eftir skírnar blessað bað
blómið upp vex nýdöggvað
lífs í ljósi skæru.

  • TValdimar Briem – Sb. 1886
  • LÞorkell Sigurbjörnsson 1998
  • Eldra númer 251
  • Eldra númer útskýring T