Sálmabók
34. Blíða nótt, blessaða nótt
Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
1 Blíða nótt, blessaða nótt!
Blundar jörð, allt er hljótt.
Fátæk móðir heilög og hrein
hljóðlát vakir, á lokkprúðan svein
:,: horfir í himneskri ró. :,:
2 Blíða nótt, blessaða nótt!
Blikar skær stjarna rótt.
Hljómar englanna hátíðarlag.
Heimur fagnaðu! Þér er í dag
:,: frelsari fæddur á jörð. :,:
3 Blíða nótt, blessaða nótt!
Heilagt barn brosir rótt;
ást og mildi af ásjónu skín.
Enn er friðar að leita til þín,
:,: Kristur, kominn í heim. :,:
- TJosef Mohr 1818 – Helgi Hálfdanarson, 1979Stille Nacht, heilige Nacht
- LFranz X. Gruber 1818 – Sb. 1871Stille Nacht, heilige Nacht
- Sálmar með sama lagi
- Biblíutilvísun Lúk. 2.7–14