
Aðgerðateymið
Aðgerðateymi Þjóðkirkjunnar er skipað skv. Starfsreglum um um meðferð mála og aðgerðir er varða einelti, kynferðislega áreitni, kynbundna áreitni, ofbeldi, ámælisverða og refsiverða háttsemi innan þjóðkirkjunnar.
Kirkjuþing skipar í aðgerðateymi Þjóðkirkjunnar. Í teyminu eru:
Bragi Björnsson, lögmaður, Lögvörn ehf. s. 512-1212 / bragi@logvorn.is
Ragna Björg Guðbrandsdóttir, forstöðumaður Bjarkarhlíðar
Karl Reynir Einarsson, geðlæknir
Öll eru þau sérfróð um þau mál sem falla undir teymið og starfsreglur.
Teymi þjóðkirkjunnar, starfsmönnum hennar, fagaðilum og talsmönnum, ef við á, er skylt að gæta þagmælsku um þau mál sem til umfjöllunar eru hjá teyminu.
Hver sem telur starfsmann Þjóðkirkjunnar hafa mögulega orðið uppvísan að háttsemi, sem aðgerðateymið fjallar um, getur borið mál undir aðgerðateymið.
Hverjum þeim er starfar innan Þjóðkirkjunnar og býr yfir vitneskju um ætlað kynferðisbrot eða annað ofbeldi gegn barni er skilyrðislaust skylt að tilkynna slíkt samkvæmt gildandi lögum til lögreglu og/eða barnaverndaryfirvalda.
Hlutverk aðgerðateymisins er að taka við tilkynningum er varða einelti, kynferðislega áreitni, kynbundna áreitni, ofbeldi, ámælisverða og/eða refsiverða háttsemi í starfsemi Þjóðkirkjunnar, kanna þær ávirðingar sem þar koma fram og grípa til þeirra aðgerða sem starfsreglur og lög mæla fyrir um.