Mynd sem tengist textanum

Úrskurðarnefnd Þjóðkirkjunnar

Úrskurðarnefnd Þjóðkirkjunnar starfar samkvæmt starfsreglum kirkjuþings. Nefndin skal úrskurða í málum vegna ágreinings á kirkjulegum vettvangi eða þegar starfsmaður eða trúnaðarmaður Þjóðkirkjunnar er borinn sökum um agabrot eða annað brot í starfi.

Með ágreiningi á kirkjulegum vettvangi er átt við ágreining sem varðar með einhverjum hætti kirkjulegt starf eða starfsemi á vegum kirkjunnar. Úrskurðarnefndin fjallar ekki um málefni sem varða ráðningar og starfslok starfsfólks þjóðkirkjunnar. Allir, sem hagsmuna eiga að gæta, geta borið mál undir úrskurðarnefnd.

Erindi til nefndarinnar skal senda rafrænt á netfangið urskurdarnefnd@kirkjan.is.