
Séra Eðvarð Ingólfsson lést 28. janúar sl. á Ási í Hveragerði, 65 ára að aldri.
Eðvarð fæddist 25. apríl 1960 í Reykjavík en ólst upp á Hellissandi. Foreldrar hans voru Guðný Jónína Þórarinsdóttir og Ingólfur Eðvarðsson. Systur hans voru sex.
Eðvarð lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Egilsstöðum 1981 og embættisprófi í guðfræði 1995. Hann var vígður til starfa á Skinnastað í Öxarfirði vorið 1996 en í desember 1997 fluttist hann yfir til Akraness og var þar sóknarprestur í 22 ár. Setti hann svip á bæinn og hefur honum verið minnst af sóknarbörnum sínum sem réttum manni á réttum stað í Akranesskirkju, hátíðlegum og hlýjum, en stutt í húmorinn þegar við átti.
Auk þess að sinna erilsömum embættum stundaði hann áhugamál sín sem voru fjölmörg. Hann var um tíma dagskrárgerðarmaður hjá Ríkisútvarpinu, bæði á Rás 1 og Rás 2, og var einn af fyrstu þáttastjórnendum Rásar 2. Skriftir voru líf hans og yndi. Hann byrjaði níu ára gamall að semja fréttabréf á Hellissandi. Skrifaði Eðvarð margar barna- og unglingabækur auk ævisagna merkra Íslendinga, meðal annars Ragga Bjarna og Róberts Arnfinnssonar.
Eðvarð fékk viðurkenningar fyrir ritstörf og átti metsölubækur eins og Fimmtán ára á föstu og Sextán ára í sambúð. Hann þurfti að hætta störfum langt fyrir aldur fram vegna erfiðra veikinda.
Eðvarð var kvæntur Bryndísi Sigurjónsdóttur kennara, f. 1963. Börn þeirra eru Elísa, f. 1986, Ingólfur, f. 1989, og Sigurjón, f. 1996. Barnabörnin eru fjögur.