
Sr. Ragnheiður Erla Bjarnadóttir lést á gjörgæsludeild Landspítalans þann 19. mars síðast liðinn.
Ragnheiður Erla var fædd í Reykjavík 7. júní árið 1953. Foreldrar hennar voru Bjarni Bjarnason og Alma Thorarensen. Hún varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1973 og fór í líffræði í Háskóla Íslands þar sem hún lauk B Sc. prófi haustið 1976 með áherslu á grasafræði. Hún lauk cand. theol. prófi frá Guðfræðideild Háskóla Íslands haustið 1987.
Ragnheiður Erla var skipuð sóknarprestur í Raufarhafnarprestakalli frá 1. júlí 1988 og var vígð 2. júlí sama ár. Henni var veitt lausn frá embætti 15. október árið 1991.
Eftir árin á Raufarhöfn stundaði hún nám í fornleifafræði við Boston University þaðan sem hún lauk MA-prófi rúmum tveimur árum síðar. Því tengdu vann hún m.a. við fornleifauppgröft á Ítalíu. Ragnheiður Erla vann lengi við ferðaþjónustu en hún hafði bæði sótt námskeið í leiðsögn hjá Ferðaskrifstofu ríkisins 1974 og við MK veturinn 1991-92 og var félagi í Leiðsögumanna¬félaginu. Sérhæfing hennar voru sérferðir innanlands og má þar nefna ferðir tengdar kirkjum, þjóðsögum, Íslendingasögum, bókmenntum, grasafræði, fossum, jarðfræði og fornleifafræði.
Hún stundaði einnig nám í einsöng hjá Nönnu Egils Björnsson við Söngskólann í Reykjavík þar sem hún lauk 8. stigs prófi og síðar í einkasöngnámi hjá Svanhvíti Egilsdóttur í Vínarborg í nokkur ár. Ragnheiður Erla stundaði síðar sjálfstæðar rannsóknir, m.a. á íslenskum altaristöflum en hún hafði heimsótt hverja einustu kirkju á landinu. Ragnheiður Erla var ljóðelsk og byrjaði að yrkja á unglingsárunum. Ljóðabók hennar Grænt líf, kom út 1973.