
Biskup Íslands hefur boðað til kirkjuþings unga fólksins, sem haldið verður dagana 3.-4. október næstkomandi í Háteigskirkju. Ingunn Björk Jónsdóttir svæðisstjóri æskulýðsmála á Höfuðborgarsvæðinu annast skipulag þess.
Kirkjuþing unga fólksins er vettvangur þar sem ungt fólk innan Þjóðkirkjunnar kemur saman til að ræða, læra og móta framtíð kirkjunnar. Á kirkjuþingi unga fólksins eiga sæti fulltrúar allra prófastsdæma og sjá svæðisstjórar æskulýðsmála um að boða fulltrúa frá sínu umdæmi.
Samkvæmt starfsreglum um kirkjuþing unga fólksins bera svæðisstjórar ábyrgð á því að fulltrúar verði valdir úr hópi æskulýðsleiðtoga og ungmenna í sínu kjördæmi. Svæðisstjóri tilkynnir valda fulltrúa til verkefnisstjóra kirkjuþings unga fólksins sem er Ingunn Björk Jónsdóttir, svæðisstjóri æskulýðsmála á höfuðborgarsvæðinu, á netfangið ingunn.bjork.jonsdottir@kirkjan.is.
Frestur til að skila inn tilnefningum er til 10. september nk. Nánari dagskrá og upplýsingar um skipulag verður auglýst síðar.