
Hólahátíð fer fram dagana 15. og 16. ágúst næstkomandi og hefur dagskráin verið kynnt. Hún er eins og hér segir:
Laugardagur 15. ágúst
Kl. 13:00
Gengið upp í Gvendarskál.
Sr. Sigríður Gunnarsdóttir prófastur leiðir göngu frá skólahúsi upp í Gvendarskál og sér þar um helgistund við Gvendaraltari.
Kl. 14:00
Hólahátíð barnanna.
Lydía Einarsdóttir svæðisstjóri æskulýðsmála og Karl Lúðvíksson sjá um dagskrá fyrir börn og fjölskyldur.
Kl. 15:30
Söngstund í Hóladómkirkju.
Kl. 16:00
Grill við Auðunarstofu.
Sunnudagur 16. ágúst
Kl. 10:15
Tíðagjörð í Hóladómkirkju.
Kl. 11:00
Fyrirlestur í Hóladómkirkju.
Kristján B. Jónasson bókmenntafræðingur flytur fyrirlestur sem ber yfirskriftina: „Vörn Íslands hefst á Hólum.“
Kl. 14.00
Hátíðarmessa í Hóladómkirkju.
Gísli Gunnarsson vígslubiskup prédikar. Einnig þjóna í messunni: Guðrún Karls Helgudóttir biskup Íslands, Jón A. Baldvinsson, Kristján Valur Ingólfsson og Solveig Lára Guðmundsdóttir, fyrrum vígslubiskupar, sr. Halla Rut Stefánsdóttir, sr. Karl V. Matthíasson, sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir prófastur og Anna Hulda Júlíusdóttir djákni. Kirkjukór Hóladómkirkju og Skagfirski kammerkórinn syngja. Organistar eru Jóhann Bjarnason og Eyþór Franzson Wechner.
Veislukaffi að hátíðarmessu lokinni.
Kl. 16:00
Hátíðarsamkoma í Hóladómkirkju.
Ræðumaður er Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra Íslands.
Ávarp flytur Guðrún Karls Helgudóttir, biskup Íslands.
Sigríður Ásta Olgeirsdóttir syngur og meðleikari er Vilberg Andri Pálsson.
Gerður Kristný Guðjónsdóttir rithöfundur og skáld flytur ljóð.