
Dagskrá Skálholtshátíðar liggur nú fyrir og er birt hér að neðan. Hátíðin fer fram 18. og 19. júlí næstkomandi.
LAUGARDAGUR 18. JÚLÍ:
Kl. 11:00 Útimessa við Þorlákssæti.
Safnast verður saman við kirkjudyr fyrir kl. 11:00.
Skálholtshátíð sett við Þorlákssæti.
Kl. 12:00 Hádegisverður.
Kl. 14:00 Til móttöku og blessunar - um altarismynd Nínu Tryggvadóttur.
Aðalheiður Valgeirsdóttir myndlistarmaður og listfræðingur flytur erindi um á vegum Skálholtsfélags hins nýja um altarismynd Nínu Tryggvadóttur, en í júní voru 60 ár frá því myndin kom í kirkjuna.
Fyrirlesturinn fer fram í dómkirkjunni.
Síðdegiskaffi í Skálholtsskóla
Kl. 16:00 Hátíðartónleikar Skálholtshátíðar í kirkjunni.
Strengjasveit leikur undir stjórn Páls Palomares.
Kl. 18:00 Tíðagjörð Ísleifsreglunnar í kirkjunni.
Kl. 19:00 Hátíðarkvöldverður fyrir gesti og flytjendur á hátíðinni.
Tónlistarstund í kirkjunni.
SUNNUDAGUR 18. JÚLÍ, SKÁLHOLTSHÁTÍÐ:
Kl. 9:00 Tíðagjörð Ísleifsreglunnar og í framhaldi af því aðalfundur Ísleifsreglunnar.
Kl. 11:00 Orgeltónleikar Péturs Nóa Stefánssonar, sem leikur tónlist eftir Johann Sebastian Bach.
Kl. 12:00 Hádegisverður í Skálholtsskóla.
Réttur dagsins verða bjúgu með kartöflum og uppstúf í tilefni af því að 70 ár eru liðin frá fyrstu Skálholtshátíðinni árið 1956, en þá voru seld bjúgu í sölutjöldum.
Kl. 14:00 Hátíðarmessa á Skálholtshátíð.
Biskup Íslands Guðrún Karls Helgudóttir prédikar.
Biskupar og prestar þjóna fyrir altari.
Djáknar lesa ritningarlestra.
Ungmenni biðja bænir.
Kl. 15:00 Kirkjukaffi í Skálholtsskóla.
Kl. 16:00 Hátíðardagskrá í Skálholtsdómkirkju.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir flytur hátíðarræðu.
Skálholtskórinn og Jón Bjarnason kantor flytja tónlist.
Kl. 18:00 Tíðagjörð Ísleifsreglunnar í Skálholtsdómkirkju.