
Fræðsluþing kirkjunnar miðvikudaginn 20.maí 2026
05.05.2026
Opið fræðsluþing vegna endurskoðaðar fræðslustefnu og námskrár Þjóðkirkjunnar verður haldið miðvikudaginn 20.maí og gefst þátttakendum færi á að koma athugasemdum sínum á framfæri. Ný fræðslustefna og ný námskrá kirkjustarfsins verða síðan lögð fyrir Kirkjuþing haustið 2026 til samþykktar.
Þingið verður rafrænt og haldið á Teams.
Hægt er að velja á milli tveggja fundartíma: Kl. 10:00 og 17:00 og mun hvor fundur ekki taka meira en tvo klukkutíma.
Fólk er vinsamlegast beðið um að tilkynna þátttöku sína fyrir 19.maí með tölvupósti á: elin@kirkjan.is.