
Frambjóðendur til kirkjuþings
13.04.2026
Nú liggur fyrir hverjir verða í kjöri til kirkjuþings 2026-2030 en kosið verður dagana 7. -12. maí nk. og verður kosningin rafræn.
Lista yfir þau sem í kjöri eru úr öllum kjördæmum leikmanna og vígðra má nú finna hér á upplýsingasíðu um kirkjuþingskosningar á kirkjan.is.
Alls sitja 29 fulltrúar á kirkjuþingi, 12 vígðir og 17 leikmenn.
Kjörstjórn kirkjunnar hefur samþykkt framboð til kirkjuþings en frestur til að skila þeim rann út á miðnætti 15. mars. sl. Þar sem ekki bárust nægilega mörg framboð í öllum kjördæmum var uppstillingarnefnd þjóðkirkjunnar gert viðvart og tilnefndi hún þá frambjóðendur sem á vantaði.