
Sr. Guðni Már Harðarson hefur ráðinn prestur við íslenska söfnuðinn í Danmörku og sendiráðsprestur. Staðan var ein fjölmargra sem auglýstar voru lausar til umsókna í vor. Sendiráðsprestur í Danmörku hefur aðsetur í sendiráði Íslands í Kaupmannahöfn.
Guðni Már Harðarson var vígður prestur til KFUM og KFUK og KSH í júní 2006. Hann hefur þjónað í Lindakirkju undanfarin átján ár og gegnt margvíslegum trúnaðarstörfum innan Þjóðkirkjunnar, Hins íslenska Biblíufélags, sumarbúðum KFUM og KFUK og Minningarsjóði Bryndísar Klöru. Hann var forsprakki og einn handritshöfunda barnaefnisins Daginn í dag.
Guðni Már lauk 2ára viðbótarnámi M.Th -Master of Theology með áherslu á sálgæslu og predikunarfræði frá Luther Seminary í St.Paul, Minnesota vorið 2017.
Hann er giftur Ásdísi Björnsdóttur enskukennara og eiga þau þrjú börn, Nóa Pétur, Dagmar Eddu og Signýju Náð.