
Kirkjuþing sett í Áskirkju
24.10.2026
Kirkjuþing kom saman í dag í fyrsta sinn eftir kosningar til kirkjuþings sem fram fóru fyrr á árinu. Þingið var sett í Áskirkju af Drífu Hjartardóttur, fráfarandi forseta kirkjuþings. Hildur Björnsdóttir borgarstjóri flutti ræðu við tilefnið.
Í upphafi þingsins var Einar Már Sigurðarson kjörinn forseti kirkjuþings 2026-2030.
Varaforsetar eru þau Jónína Rós Guðmundsdóttir og Ásmundur Friðriksson.
Rúnar Vilhjálmsson var endurkjörinn stjórnarformaður. Með honum í stjórn Þjóðkirkjunnar 2026 - 2027 eru þau Árni Helgason, Margrét Bóasdóttir, Bryndís Malla Elídóttir og Ninna Sif Svavarsdóttir.
Á dagskrá þingsins eru fjöldi mála en dagskrá þingsins má nálgast hér í heild sinni.
Fylgjast má með störfum þingsins á streymi hér.