Mynd sem tengist textanum
Laus staða prests við Austfjarðaprestkall
22.05.2026

Biskup Íslands óskar eftir presti til þjónustu í Austfjarðarprestakalli með sérstakar skyldur við Norðfjarðar-, Eskifjarðar- og Reyðarfjarðarsóknir. Umsóknarfrestur er 28. maí n.k.

Í Austfjarðaprestakalli eru íbúar tæplega 6000 og þar af eru um 4000 í Þjóðkirkjunni. Íbúum hefur fjölgað undanfarin ár og barnafjölskyldur eru margar enda vel búið að þeim, að því er kemur fram í auglýsingunni. Í Austfjarðaprestakalli eru 11 sóknir, allar með sóknarkirkju.

Nánari upplýsingar um starfið og umsóknarferli má nálgast undir Laus störf hér á síðu Þjóðkirkjunnar.