Mynd sem tengist textanum
Prestar og djáknar á prestastefnu á Akureyri 2026 mynd/Eyþór Ingi
Prestar og djáknar lýsa yfir þungum áhyggjum vegna ófriðar í heiminum
17.04.2026

Presta- og djáknastefnu 2026 var slitið í gær en hún fór fram að þessu sinni á Akureyri. Um 130 prestar og djáknar tóku þátt í dagskránni í ár sem hófst með prósessíu frá Menntaskólanum á Akureyri að Akureyrarkirkju þar sem setningarathöfnin fór fram að lokinni messu.

Líflegar umræður fóru fram á stefnunni um upprisuna, játningar kirkjunnar og innri samþykktir hennar. Þá samþykkti presta- og djáknastefna samhljóða ályktun þar sem viðstaddir lýstu yfir verulegum áhyggjum af stöðu heimsmála.

Ályktunin er hér birt í heild sinni:

Ályktun Presta- og djáknastefnu 2026.

Presta- og djáknastefna haldin í Akureyrarkirkju og Glerárkirkju 14.-16. apríl 2026 lýsir yfir þungum áhyggjum vegna styrjalda, ofsókna og mannréttindabrota í heiminum í dag.

Presta- og djáknastefna minnir á að Guð er Guð friðar og að sérhver manneskja er sköpuð í Guðs mynd. Því verður hvorki ofbeldi né stríð réttlætt í nafni kristinnar trúar. Vígðir þjónar þjóðkirkjunnar fordæma allt ofbeldi og hvetja til virðingar fyrir þjóðarétti, mannréttindum og mannhelgi.

Presta- og djáknastefna áréttar að kirkjunni beri að standa með þolendum, tala fyrir friði og réttlæti ásamt því að vinna gegn hatri og sundrung.

Presta- og djáknastefna lýsir yfir samstöðu með þeim kirkjum í heiminum, þjóðum og einstaklingum sem lifa við hörmungar og afleiðingar stríðs og ofbeldis.

Presta- og djáknastefna hvetur söfnuði landsins og kirkjufólk til að taka skýra afstöðu með friði og réttlæti, auka hjálparstarf, biðja fyrir þeim sem þjást vegna stríðs og átaka og leggja sitt af mörkum til að miðla sátt og von.

Í Filippíbréfinu 4. kafla versum 6 - 9 er kirkja Krists hvött til að bera bænir sínar fram fyrir Guð:

6 Verið ekki hugsjúk um neitt heldur gerið í öllum hlutum óskir ykkar kunnar Guði með bæn og beiðni og þakkargjörð. 7 Og friður Guðs, sem er æðri öllum skilningi, mun varðveita hjörtu ykkar og hugsanir ykkar í Kristi Jesú.

8 Að endingu, systkin, allt sem er satt, allt sem er göfugt, rétt og hreint, allt sem er elskuvert og gott afspurnar, hvað sem er dygð og hvað sem er lofsvert, hugfestið það. 9 Þið skuluð gera þetta, sem þið hafið bæði lært og numið, heyrt og séð til mín. Og Guð friðarins mun vera með ykkur.

Presta- og djáknastefna biður kirkjufólk að tendra ljós og sameinast í þessari bæn.

Friðarins Guð.

Við biðjum fyrir þeim sem lifa við stríð, ofbeldi og ofsóknir, fyrir þeim sem syrgja, þeim sem flýja heimili sín og þeim sem búa við ótta og vonleysi.

Minn okkur á að sérhver manneskja er sköpuð í þinni mynd og hjálpaðu okkur að virða mannhelgi, réttlæti og frið. Tak frá okkur hatur, hörku og afskiptaleysi og gef að kirkja þín sýni kjark og stand ætíð með þeim sem þjást og beri vitni um kærleika þinn í orði og verki.

Leið þjóðir og leiðtoga heimsins af vegi ofbeldis inn á veg sátta, ábyrgðar og friðar. Gef okkur hugrekki til að vera friðflytjendur í okkar eigin samfélagi og halda á lofti voninni þegar myrkrið sækir að. Í Jesú nafni. Amen.