Mynd sem tengist textanum
Prestvígsla í Dómkirkjunni sunnudaginn 23. ágúst
21.08.2026

Þrír verðandi prestar munu þiggja vígslu á sunnudaginn n.k., 23. ágúst kl 11:00.

Auður Pálsdóttir vígist sem sjúkrahúsprestur á Landspítala. Vígsluvottar hennar eru Sr. Gunnar Rúnar Matthíasson, deildarstjóri sálgæslu presta og djákna á Landspítalanum, og sr. Guðbjörg Jóhannesdóttir, prófastur í Reykjavíkurprófastsdæmi vestra.

Hilmir Kolbeins vígist til Austfjarðaprestakalls í Austurlandsprófastsdæmi. Vígsluvottar hans eru sr. Ingimar Helgason sóknarprestur í Kirkjubæjarklaustursprestsakalli og sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir, prófastur í Austfjarðaprófastsdæmi.

Sólveig Franklínsdóttir vígist sem safnaðarráðin æskulýðsprestur til Fossvogsprestakalls í Reykjavíkurprófastsdæmi vestra. Vígsluvottar hennar eru sr. Guðbjörg Jóhannesdóttir, prófastur í Reykjavíkurprófastsdæmi vestra og sr. Þorvaldur Víðisson, sóknarprestur í Fossvogsprestakalli.

Athöfnin hefst kl 11:00 í Dómkirkjunni í Reykjavík og er öllum að sjálfsögðu velkomið að taka þátt. Sr. Sveinn Valgeirsson þjónar og Matthías Harðarson dómorganisti leikur á orgel og stýrir Dómkórnum.