Mynd sem tengist textanum
Ráðningarferli í stöður presta í Lindaprestakalli og Austfjarðaprestakalli enn í vinnslu
04.08.2026

Laus staða prests við Lindaprestakall í Kópavogi hefur verið auglýst á ný en fyrra ráðningarferli lauk án ráðningar. Tveir sóttu um stöðuna og óskuðu báðir umsækjendur nafnleyndar.

Finna má ítarlegri upplýsingar um stöðuna á ráðningarvef Þjóðkirkjunnar, hér.

Engar umsóknir bárust um lausa stöðu prests í Austfjarðaprestakalli með starfsstöð í Djúpavogskirkju. Staðan verður auglýst á ný síðar í samráði og samstarfi við sóknarnefndir prestakallsins.