
Sjö störf presta eru nú auglýst laus til umsóknar inni á vef Þjóðkirkjunnar. Mun þetta vera í fyrsta sinn sem svo mörg störf eru auglýst á sama tíma, hið minnsta í langan tíma.
Störfin sem um ræðir eru sendiráðsprestur í Danmörku, með aðsetur í sendiráði Íslands í Kaupmannahöfn, tvær stöður presta í Þingeyjarprestakalli, prestur í Árborgarprestakalli, tímabundin afleysing prests í Þorlákshafnarprestakalli, staða prests í Austfjarðaprestkalli með sérstakar skyldur við Norðfjarðar-, Eskifjarðar- og Reyðarfjarðarsóknir, og loks er auglýst eftir héraðspresti til þjónustu í Vestfjarðaprófastsdæmi með sérstakar skyldur við Hólssókn í Bolungarvík.
Til gamans má geta þess að meðal síðustu verka Bolvíkingsins Jónu Finnsdóttur á Biskupsstofu var að auglýsa eftir héraðspresti í Bolungarvík, en hún lét af störfum í dag sem sérfræðingur á mannauðssviði.
Frekari upplýsingar um störfin má sjá hér á vefnum, og þar er jafnframt hægt að sækja um laus störf.