
Sr. Arnaldur Arnold Bárðarson hefur verið ráðinn prestur í Árborgarprestakalli. Hann hefur störf 1. ágúst n.k.
Sr. Arnaldur Bárðarson er fæddur á Akureyri árið 1966, lauk námi frá guðfræðideild Háskóla Íslands árið 1995 og vígðist til prestsþjónustu í Raufarhafnarprestakalli ári síðar. Hann varð síðar prestur á Hálsi í Fnjóskadal og Glerárkirkju á Akureyri.
Árið 2010 gekk hann í þjónustu norsku kirkjunnar og starfaði þar til 2017. Hann snéri þá aftur til Íslands og varð sóknarprestur í Eyrarbakkaprestakalli og í Þorlákshöfn eitt ár en síðar prestur í Árborgarprestakalli við stofnun þess. Frá ársbyrjun 2023 hefur hann verið prestur í Austfjarðaprestakalli og býr á prestssetrinu Heydölum í Breiðdal.
Arnaldur bætti við sig meistaraprófi í menntunarfræðum frá Háskólanum á Akureyri og framhaldsnámi í guðfræði frá MF í Osló.
Eiginkona Arnaldar er sr. Ingibjörg Jóhannsdóttir. Hún var áður prestur í norsku kirkjunni en auk þess er hún menntuð sem sérkennari. Síðari ár hefur hún starfað sem djákni í Austfjarðaprestakalli. Þau eiga fimm syni og ellefu barnabörn.