Mynd sem tengist textanum
Sr. Pétur Ragnhildarson ráðinn til Lindarkirkju og Halldór Elías Guðmundsson djákni til Austfjarðaprestakalls
28.08.2026

Sr. Pétur Ragnhildarson hefur verið ráðinn í stöðu prests við Lindaprestakall í Kópavogi og Halldór Elías Guðmundsson í stöðu við djákna í Austfjarðaprestakalli.

Pétur Ragnhildarson er fæddur árið 1993. Hann varð stúdent frá náttúrufræðibraut Menntaskólans á Akureyri, lauk BA-prófi í guðfræði árið 2017 og embættisprófi, mag.theol. árið 2019. Sumarið 2021 lauk hann MA-prófi í guðfræði meðfram starfi. Að auki hefur Pétur lokið diplómanámi í sálgæslu frá Endurmenntun Háskóla Íslands og námskeiði í sáttamiðlun við Háskólann í Reykjavík.

Pétur hefur áralanga reynslu af barna og unglingastarfi. Hann hefur starfað sem æskulýðsfulltrúi í kirkjum, yfirmaður í frístundastarfi í grunnskóla og forstöðumaður í sumarbúðum.

Þann 1. mars árið 2020 var Pétur vígður til prestsþjónustu í Fella og Hólakirkju í Breiðholtsprestakalli og Guðríðarkirkju í Grafarholti, þar sem hann starfaði sem prestur og æskulýðsfulltrúi. Sumarið 2022 var hann skipaður prestur í Breiðholtsprestakalli.

Pétur er giftur Alexöndru Ýr Auðunsdóttur og eiga þau tvo syni.

Halldór Elías Guðmundsson djákni fæddist 1973 og ólst upp í Laugarneshverfinu í Reykjavík. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1992 og BA-gráðu í guðfræði 1997 (djáknanám). Halldór var vígður til djáknaþjónustu hjá Æskulýðssambandi kirkjunnar í Reykjavíkurprófastsdæmum (ÆSKR) í september sama ár. Hann kláraði hagnýtt meistaranám í leikmannafræðum frá Trinity Lutheran Seminary í Ohio, Bandaríkjunum 2008 og rannsóknarnámi á meistarastigi við sama skóla 2010. Verkefnið hans fjallaði um gæðamat á kirkjulegu starfi.

Halldór hefur komið að barna- og unglingastarfi á kristilegum vettvangi í yfir 35 ár. Hann hóf störf í sumarbúðunum í Vatnaskógi 1991 og vann þar í sumarstarfi og á fermingarnámskeiðum með hléum til ársins 2019. Hann hefur starfað sem æskulýðsfulltrúi, fræðslufulltrúi og framkvæmdastjóri í kirkjum og hjá kristilegum félagasamtökum heima og erlendis. Hann hefur skrifað kristilegt fræðsluefni fyrir flesta aldurshópa og komið að fjölþættri leiðtogaþjálfun bæði fyrir kirkjuna og kristileg félagasamtök.

Halldór flutti ásamt fjölskyldu sinni til Bandaríkjanna í desember 2005 og hefur síðan unnið jöfnum höndum að kristilegu starfi í Bandaríkjunum og á Íslandi. Hann var vígður til prestsþjónustu hjá United Church of Christ í nóvember 2021 og hefur síðan þjónað Church of the Redeemer UMC í Cleveland Heights, Ohio. Halldór hefur jafnframt sinnt fjölmörgum verkefnum fyrir Hið íslenska biblíufélag frá árinu 2018.

Eiginkona Halldórs er Dr. Jenný Brynjarsdóttir og þau eiga tvö uppkomin börn.