Mynd sem tengist textanum
Sr. Sigríður Guðmundsdóttir er látin
03.07.2026

Sr. Sigríður Guðmundsdóttir fyrrum sóknarprestur á Hvanneyri er látin.

Sigríður var fædd 2. júlí árið 1963 í Hafnarfirði.

Foreldrar hennar voru Guðmundur Kristinn Jónsson og Sesselja Guðmunda Sigurðardóttir.

Sigríður varð stúdent frá Fjölbrautarskólanum við Ármúla árið 1986 og lauk cand. theol prófi frá Háskóla Íslands 23. október árið 1992.

Hún sótti námskeið um fjölmiðlun og ofbeldi í fjölskyldum við Félagsvísindadeild Háskóla Íslands.

Auk þess sótti hún fjölda námskeiða um barna og æskulýðsstarf og tölvunotkun við Endurmenntunarstofnun Háskóla Íslands.

Á námsárunum vann hún í Landsbanka Íslands um sjö ára skeið og við aðhlynningu aldraðra.

Sigríði var veitt Hvanneyrarprestakall í Borgarfjarðarprófastsdæmi frá 20. nóvember árið 1994 og vígð sama dag.

Hún lét af embætti sóknarprests að eigin ósk 1. mars árið 2000.