Mynd sem tengist textanum
Sr. Þórir Stephensen er látinn
01.07.2026

Fyrrverandi dómkirkjuprestur og staðarhaldari í Viðey, sr. Þórir Stephensen, er látinn. Hann lést á Skjóli þann 30. júní s.l. Þórir hefði orðið 95 ára þann 1. ágúst næstkomandi.

Greint var frá andláti sr. Þóris í Morgunblaðinu.

Þórir lauk guðfræðiprófi frá HÍ árið 1954 og nam jafnframt kennimannlega guðfræði í Þýskalandi á 7. áratuginum. Þá lauk Þórir jafnframt námi í skjalavörslu og skjalasöfnun frá HÍ árið 1990 og meistaraprófi í kirkjusögu árið 2002 frá sama skóla.

Þórir vígðist til prests árið 1954, þá aðeins 22 ára gamall og var settur sóknarprestur í Staðarhólsþingum í Dölum. Þá var hann sóknarprestur á Sauðárkróki á milli 1960 og 1971, aðstoðarprestur við Dómkirkjuna í Reykjavík á milli 1971 og 1973 og loks kjörinn dómkirkjuprestur. Gegndi hann þeirri stöðu til ársins 1989.

Sr. Þórir varð loks staðarhaldari í Viðey og sinnti því til sjötugs. Hann sinnti einnig kennslu, bæði á Sauðárkróki og í Reykjavík og lét til sín taka í margvíslegum félagsstörfum, m.a. í Rótarý, Lions, Rauða krossinum, Frímúrarareglunni, Prestafélagi Íslands og Bandalagi háskólamanna.

Eftir Þóri liggja mörg ritverk. Má þar nefna Sögu Dómkirkjunnar í Reykjavík, Sögu kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæma og Stefán sterki, myndbrot úr mannsævi - saga sr. Stefáns Stephensen, afa sr. Þóris.

Árið 2008 hlaut Þórir riddarakross hinnar íslensku fálkaorðu fyrir störf í þágu kirkju, sögu og samfélags.

Eiginkona Þóris var Dagbjört Gunnlaugsdóttir frá Sökku í Svarfaðardal, fædd 1927. Hún lést 2023. Börn þeirra voru þrjú; Elín, f. 1955, og Þóra, f. 1957, sem báðar eru látnar, og Ólafur, f. 1968. Síðustu tvö og hálfa árið var Þórir í sambandi með Sigrúnu Cortes. Barnabörn sr. Þóris eru fimm og hans síðasta prestverk var að skíra langafadreng sinn árið 2023.