Mynd sem tengist textanum
Starf prests við Lindaprestakall laust til umsóknar
06.07.2026

Biskup Íslands hefur auglýst starf prests við Lindaprestakall laust til umsóknar.

Lindaprestakall er eitt þriggja prestakalla í Kópavogi. Þar eru um 15.700 íbúar og rétt tæplega 11.000 sóknarbörn. Við Lindakirkju starfa þrír prestar og einn djákni auk tónlistarstjóra, rekstrarstjóra og tveggja kirkjuvarða.

Nánari upplýsingar um starfið, þarfagreiningu og Lindakirkju má sjá í auglýsingunni hér.