Mynd sem tengist textanum
Stöður presta á Austurlandi og Þingeyjarsveit lausar til umsóknar
12.06.2026

Biskup Íslands hefur auglýst lausar til umsóknar þrjár stöður presta í tveimur prestaköllum.

Annars vegar er laus til umsóknar staða prests við Austfjarðaprestakall með aðalstarfsstöð í Djúpavogskirkju. Í prestakallinu eru 11 sóknir og búa þar um 6.000 íbúar.

Hins vegar eru tvær stöður presta lausar í Þingeyjarprestakalli. Prestakallið þjónar níu sóknum og eru íbúar um 4.000. Þingeyjarprestkall varð til árið 2022 þegar Grenjaðarstaðar-, Húsavíkur- og Skútustaðaprestaköll voru sameinuð í eitt.

Biskup Íslands ræður í störfin eftir að farið hefur verið yfir allar gildar umsóknir.

Um val á umsækjendum er vísað til starfsreglna kirkjuþings um ráðningu í prestsstörf nr. 17/2021-2022 og starfsreglna um presta nr. 6/2023-2024. Reglurnar má finna undir „stjórnsýsla“ hér á síðunni.

Nánari upplýsingar má finna á „laus störf“ hér á síðunni.