Mynd sem tengist textanum
Sveinbjörg fer vestur og Hilmir austur
10.06.2026

Biskup Íslands auglýsti nýverið stöður lausar til umsóknar við Vestfjarðaprófastsdæmi með sérstakar skyldur við Hólssókn í Bolungarvík annars vegar og í Austfjarðaprestakalli með sérstakar skyldur við Norðfjarðar-, Eskifjarðar- og Reyðarfjarðarsóknir hins vegar.

Sveinbjörg Katrín Pálsdóttir verður héraðsprestur við Vestfjarðaprófastsdæmi og Hilmir Kolbeins prestur í Austfjarðaprestakalli.

Sveinbjörg hefur undanfarin átta ár starfað sem sjúkrahúsprestur við Landspítalann. Þar áður starfaði hún sem skrifstofu- og mannauðsstjóri Biskupsstofu. Hún á að baki fjölbreyttan náms- og starfsferil og hefur sinnt ýmsum trúnaðarstörfum í gegnum tíðina, m.a. á vettvangi Þjóðkirkjunnar, prestafélags Íslands og víðar.

Sveinbjörg er gift Hróbjarti Árnasyni lektor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Fjölskyldan á tvo uppkomna syni, tengdadóttur og tvær sonardætur.

Hilmir Kolbeins er fæddur 1975 og sleit barnsskónum í Breiðholtinu. Hann lærði trésmíði í Iðnskólanum og rataði þaðan í lögregluna og lauk námi frá Lögregluskóla ríkisins árið 2001. Hann starfaði hjá lögreglunni í nærri aldarfjórðung og starfar nú sem öryggisstjóri hjá Steypustöðinni. Hilmir lauk guðfræðinámi árið 2020 auk viðbótarnáms í sálgæslu og sálrænni skyndihjálp og stundar nám samhliða vinnu í sálfræði við Háskólann á Akureyri.

Hilmir er giftur Ragnheiði Vídalín Gísladóttur og eiga þau hjónin tvær dætur.

Hilmir tekur til starfa 1. ágúst og mun þiggja prestvígslu í sumar.