
Kjörstjórn Þjóðkirkjunnar hefur gefið eftirfarandi tilkynningu frá sér vegna kosninga til kirkjuþings í maí:
Kosning til kirkjuþings fer fram frá kl. 12:00 hinn 7. maí 2026 til kl. 12:00 hinn 12. maí s.á. Kosningin verður rafræn.
Á kirkjuþingi eiga sæti 29 þjóðkirkjumenn kjörnir til fjögurra ára í senn. Eru 12 þeirra úr hópi vígðra manna, þ.e. presta og djákna og 17 leikmenn.
Kjörstjórn hefur, á grundvelli 9. gr. starfsreglna nr. 8/2021-2022 um kjör til kirkjuþings, samþykkt kjörskrá vegna kosninganna.
Á kjörskrá eru þeir sem uppfylltu skilyrði kosningarréttar hinn 1. apríl 2026. Um er að ræða aðal- og varamenn í sóknarnefndum, sérstaka kjörfulltrúa og vígða þjóna þjóðkirkjunnar. Kjósandi getur kannað á vef þjóðkirkjunnar hvort nafn hans sé á kjörskrá, https://kirkjan.is/kosningar-til-kirkjuthings. Við aðgang að vefsetrinu eru notuð rafræn skilríki.
Kjörskrá liggur enn fremur frammi kjósendum til sýnis á skrifstofu Þjóðkirkjunnar og á skrifstofum prófasta.
Athugasemdir vegna kjörskrár skulu berast kjörstjórn eigi síðar en þremur sólarhringum áður en kosning hefst eða fyrir kl. 12:00 hinn 4. maí. Athugasemdir skulu sendar á netfangið kirkjan@kirkjan.is.
Reykjavík, 14. apríl 2026
f.h. kjörstjórnar þjóðkirkjunnar
Anna M. Karlsdóttir, formaður.