
Biskup Íslands auglýsti nýverið sjö lausar stöður presta til umsóknar.
Störfin sem um ræðir eru sendiráðsprestur í Danmörku með aðsetur í sendiráði Íslands í Kaupmannahöfn, tvær stöður presta í Þingeyjarprestakalli, prestur í Árborgarprestakalli, tímabundin afleysing prests í Þorlákshafnarprestakalli, staða prests í Austfjarðaprestkalli með sérstakar skyldur við Norðfjarðar-, Eskifjarðar- og Reyðarfjarðarsóknir, og loks er auglýst eftir héraðspresti til þjónustu í Vestfjarðaprófastsdæmi með sérstakar skyldur við Hólssókn í Bolungarvík.
Upplýsingar um umsækjendur eru hér birtar, skv. starfsreglum Þjóðkirkjunnar.
Staða prests í Árborgarprestakalli
Þrjár umsóknir bárust:
Arnaldur Arnold Bárðarson
Tveir umsækjendur óskuðu nafnleyndar.
Tímabundin afleysing prests í Þorlákshafnarprestakalli
Ein umsókn barst:
Arnaldur Arnold Bárðarson
Staða prests í Austfjarðaprestakalli með sérstakar skyldur við Norðfjarðar-, Eskifjarðar- og Reyðarfjarðarsóknir
Ein umsókn barst:
Umsækjandi óskaði nafnleyndar.
Staða héraðsprests til þjónustu í Vestfjarðaprófastsdæmi með sérstakar skyldur við Hólssókn í Bolungarvík
Tvær umsóknir bárust:
Tveir umsækjendur óskuðu nafnleyndar.
Staða sendiráðsprests í Danmörku með aðsetur í sendiráði Íslands í Kaupmannahöfn
Fjórar umsóknir bárust:
Guðni Már Harðarson
Þrír umsækjendur óskuðu nafnleyndar.
Tvær stöður presta í Þingeyjarprestakalli
Ein umsókn barst:
Guðmundur Guðmundsson