
Tónlistarsjóður kirkjunnar og STEFs auglýsir eftir umsóknum um styrki
08.09.2026
Tónlistarsjóður kirkjunnar og STEFs auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðinum til úthlutunar í desember 2026.
Sjóðurinn úthlutar árlega styrkjum til verkefna sem efla kirkjulega tónlist og textagerð við slíka tónlist. Í því skyni styrkir sjóðurinn frumsköpun tónlistar og texta, útsetningar, rafræna útgáfu og önnur þau verkefni sem samræmast tilgangi sjóðsins.
Athugið að ekki eru veittir styrkir til tónleikahalds.
Umsókn skal fylgja hnitmiðuð og greinargóð lýsing á verkefninu ásamt sundurliðaðri kostnaðaráætlun og styrkupphæð sem óskað er eftir.
Bent er á að ekki er sérstakt umsóknareyðublað, en eftirfarandi atriði þurfa að koma fram í umsókn:
- Nafn
- Kennitala
- Heimilisfang
- Netfang
- Stutt ferilskrá umsækjanda
Úthlutað verður í desember 2026.